Við trúum því að hægt sé að breyta heiminum með litlum handtökum.

Styrkja

Þú getur haft áhrif

Skattafrádráttur

Þú sparar með að styrkja!

Útfararsjóðurinn er á almannaheillaskrá Skattsins og geta einstaklingar nýtt framlög sín til lækkunar á skattstofni, að hámarki 350.000 kr.

Frádráttur rekstraraðila getur numið 1,5% af rekstrartekjum á því ári sem framlag er veitt.

Styrkveitingar

Útfararsjóður barna og unglinga starfar með útfararstofum og líkhúsum landsins. Sjá þau um að veita aðstandendum viðeigandi upplýsingar.

Fyrst um sinn mun sjóðurinn beina augum sínum að þeim færri fjármuni milli handanna, en þegar burður færist í sjóðinn er markmiðið að ná til allra aðstandenda.

Samþykktir, rekstur og ársskýrslur

Útfararsjóður barna og unglinga var stofnaður júní 2026 sem félag til almannaheilla og er skráð á almannaheillaskrá - Sjóðurinn þrífst eingöngu af frjálsum framlögum einstaklinga og fyrirtækja auk styrksókna.

Sem óhagnaðardrifið félag leggjum við ríka áherslu á gagnsæi rekstursins svo að styrktaraðilar og styrkþegar geti haft fullt traust á dreifingu styrkja.

Styrkveitingar eru eftir aðstæðum og burði sjóðs að hverju sinni.