Um sjóðinn
Markmið sjóðsins
Síðasta áhyggjuefni foreldris ætti að vera hvernig á að fjármagna útför barna sinna. Svo tilgangur og markmið sjóðsins var afar einfalt; greiða fyrir útfarir allra barna og unglinga á Íslandi.
Styrkveitingar eru eftir kringumstæðum en eru útfarir barna undir 18 ára aldri taldar vísar að styrkjum, þegar sjóðurinn hefur burð til.
Styrkir skulu endurreiknast árlega en eru fyrst um sinn allt að 800.000kr og greiðast í gegnum líkhúsin/útfararstofur.
Samþykktir, rekstur og ársskýrslur
Útfararsjóður barna og unglinga var stofnaður júní 2026 sem félag til almannaheilla og er skráð á almannaheillaskrá - Sjóðurinn þrífst eingöngu af frjálsum framlögum einstaklinga og fyrirtækja auk styrksókna.
Sem óhagnaðardrifið félag leggjum við ríka áherslu á gagnsæi rekstursins svo að styrktaraðilar og styrkþegar geti haft fullt traust á dreifingu styrkja.
Styrkveitingar eru eftir aðstæðum og burði sjóðs að hverju sinni.
Stjórn Útfararsjóðs barna og unglinga
Sindri Svan Ólafsson
Stofnandi og framkvæmdarstjóri
Trausti Sigurður Hilmisson
Meðstjórnandi
Ester Líf Ólafsdóttir
Meðstjórnandi